Nú styttist í að ríkisstjórnin ljúki störfum og leggi verk sín í dóm þjóðarinnar.
Ég er svo lánsamur að vera vel aflögufær... og ég borga talsvert háar fjárhæðir í skatt árlega. Ég þigg að sjálfsögðu engar bætur á móti frá hinu opinbera. Ég var í göngutúr á Arnarnesinu og það gladdi mig svo þegar ég horfði á fallegu húsin að hugsa til þess að vegna skuldaleiðréttinga-aðgerða ríkisstjórnarinnar hefði ég hjálpað sumum af þessum mínum minnstu bræðrum sem eiga þessi fallegu hús sem ég var að skoða með því að greiða niður eitthvað af lánunum þeirra sem skattgreiðandi í landinu. Það var mér auðvitað bæði ljúft og skylt að hjálpa til. Því miður hef ég hins vegar ekki haft ráð á að kaupa fasteign sjálfur, en það gladdi mig þó að hugsa til þess að ég væri amk að taka þátt viðleitni annarra til að kaupa fasteignir. Þetta hefur líka valdið hækkandi fasteignaverði, sem þýðir að ég borga enn meira í leigu en ella, og það kemur sér auðvitað líka vel fyrir leigusala minn. Ég er viss um að niðurgreiðsla mín og annarra hefur komið sér vel, þar sem minna fékkst frá útgerðinni en búast mátti við. Ríkisstjórnin varð nefnilega að lækka veiðigjöldin. Útgerðin er í svipuðum sporum og fasteignaeigendur. Bæði rekstur fasteigna og útgerða er mjög íþyngjandi. Sem betur fer er hægt að reiða sig á aðstoð okkar hinna sem ekki þurfum að burðast með svona þungar byrðar. Búum til betri heim. Sameinust hjálpum þeim.
No comments:
Post a Comment