Tuesday, April 21, 2020

Broddgeltir og búrkur. Facebook, 6. október 2016.

Núna í aðdraganda kosninga hef ég séð umræður um að banna ætti búrkur á Íslandi. Þetta hefur auðvitað heyrst frá Íslensku þjóðfylkingunni, þar sem búrkubann er hluti af grunnstefnu flokksins, og ég hef líka í huga t.d. ummæli frá Þorgerði Katrínu hjá Viðreisn. Það er hægt að færa fram gild rök fyrir búkubanni. Búrkan og niqab hafa verið bönnuð á mörgum stöðum t.d. í Egyptalandi og Sýrlandi þar sem meirihluti íbúa eru múslimar. Það er t.d. svo fólk geti borið kennsl á annað fólk í almennu rými o.s.frv. Það er hins vegar sérstakt að ræða búrkubann á Íslandi, þar sem ég held að það sé ekki nokkur einasta kona í landinu sem klæðist búrku eða að það hafi nokkru sinni gerst. Það að þetta sé í umræðu hér er því afar sérstakt. Það er álíka aðkallandi að takast á við íslenska búrkuvandamálið - eins og að banna veiðar á broddgöltum á norðurlandi. Það eru engir broddgeltir þar, og enginn að veiða þá. Þeir sem hafa áhyggjur af uppgangi búrkunnar í landinu eru annað hvort afar illa upplýstir, eða með alveg gríðarlega svæsna kvíðaröskun. Meðfylgjandi er svo mynd þar sem margir vita ekki hver munurinn er á búrku, niqab, hijab og shador.

No comments:

Post a Comment