Tuesday, April 21, 2020
Landamæravörðurinn knái frá Líbanon. Facebook, 30. mars 2020
Ég hef þrisvar lent í furðulegum samskiptum við landamæraverði við för yfir landamæri erlends ríkis. Hef ég nú frásögn af einum slíkum. Þetta var fyrir u.þ.b. ári síðan. Ég var lentur á flugvellinum í Líbanon, og yfirleitt er það bara formsatriði fyrir Íslending að fara yfir landamærin ef viðkomandi er með allt sitt á hreinu, þ.e.a.s. búinn að panta hótelgistingu og gera aðrar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru. Í röðinni á undan mér hafði amk tugur manns farið í gegnum hliðið eftir að landamæravörðurinn hafði bara rétt gjóað augunum á vegabréf þeirra, stimplað það og kinkað kolli. Þegar kom að mér að fara yfir landamærin tekur vörðurinn passann minn, skoðar örlítið, og segir síðan "dokaðu aðeins." Síðan stekkur hann fimlega yfir í næsta bás og ráðfærir sig við samstarfskonu sína sem var að vinna í næsta hliði. Verður heilmikil ráðstefna hjá þeim, þar sem þau skoða vegabréfið heillengi og slá upp í tölvu af miklum móð og kinka kolli og ræða saman hvíslandi. Þá var ég farinn að hafa miklar áhyggjur af því að þau hefðu fundið eitthvað sem ég hefði skrifað á netinu sem þeim líkaði ekki við, sem hægt væri að nota til að meina mér inngöngu í landið. Eftir talsverða bið kemur landamæravörðurinn til baka og segir "Fyrirgefðu. Ég er ógeðslega hrifinn af þessari konu þarna sem er að vinna með mér, svo ég notaði vegabréfið þitt sem afsökun til þess að ráðfæra mig aðeins við hana. Heyrðu, þú ert frá Íslandi. Hefur þú séð þættina "Fikings"? Það eru uppáhalds þættirnir mínir". Ég var eiginlega alveg viss um að hann væri að meina Game of Thrones, svo ég sagði bara já. Hann gaf sér mínútu til að dásama þættina og ég tók bara undir og sagði að þeir væru frábærir. Nú rétt í þessu var ég hins vegar átta mig á því að það eru þættir á Netflix sem heita Vikings og er ég að byrja að hrofa á þá þætti. Af því tilefni varð mér hugsað til landamæravarðarins knáa frá Líbanon.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment