Tuesday, April 21, 2020

Örpredikun. Facebook, 19. apríl 2020

Ég predikaði einu sinni nokkrum sinnum í mánuði upp úr Biblíunni í Hvítasunnukrikjunni á Akureyri. Ég er eiginlega farinn að sakna þess. Hér er því skrifleg predikun fyrir okkur dúllurnar sem höngum á facebook. Það er jú sunnudagur í dag.
Predikun dagsins:
"Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim?“ Matteus 6:26
Milljónum fugla er slátrað í sláturhúsum um allan heim, og í Biblíunni sem Jesús las, eru nákvæmar lýsingar á því hvernig ætti að búta þá í sundur og fórna til guðs.
Ekki farnast fuglum úti í náttúrunni mikið betur en fuglunum í sláturhúsunum. Á hverju einasta ári deyr þriðjungur fullorðinna fugla úr hungri, og 80% unga.
Boðskapur dagsins er því sá að það sé ekki mjög öruggt að vera á framfæri guðs, ef fuglarnir eru dæmi um þá sem himneskur faðir okkar brauðfærir. Amen.

No comments:

Post a Comment