Tuesday, April 21, 2020

Skjalafals. Facebook, 16. október 2016.

Ég lét Margréti Mjöll lesa heima úr skólabókinni "Mús í móa" eins og fyrir var lagt. Hún kunni því illa og áðan fann ég þennan miða í töskunni hennar. Er hér um svonefnt skjalafals að ræða, þar sem ætlunin var að falsa skilaboð frá mér til kennarans um að ég vilji banna að hún sé látin lesa bækur sem þessa. Ljóst er að ég þarf að taka mig verulega á í uppeldinu. Eitthvað hefur brugðist. Í falsaða bréfið vantar t.d. ávarp til kennarans, dagsetningu, auk annarra lágmarks formkrafna til að gera skjalið trúanlegt. En með góðri leiðbeiningu frá lögfræðimenntuðum föður hennar má búast við framförum þegar aldurinn færist yfir. Ég er þolinmóður.

No comments:

Post a Comment